SAGAN OKKAR
Benecta er framleitt á Siglufirði og er afraksturinn af meira en tíu ára rannsóknum og þróun líftækniteymisins okkar á notkun og ávinningi af kítófásykrum. Við leitumst við að vera vinnusöm, jarðbundin og hjálpsöm og leggjum áherslu á að vinna í sátt við náttúruna. Segja má að Benecta hafi mótast af hvoru tveggja í senn, landfræðilegri legu Siglufjarðar og hugarfari bæjarbúa.
STEFNAN OKKAR
Við trúum því staðfastlega að lífsgæði þurfi ekki að ráðast af „aldri“ fólks. Okkur finnst kominn tími til að endurskoða viðteknar hugmyndir um aldur. Losum okkur við öll úreltu og aðþrengjandi viðhorfin um hvernig „eldra fólk“ eigi að haga sér. Við ætlum ekki að hörfa hljóðlega inn í ellina og við ætlumst ekki heldur til þess að viðskiptavinir okkar geri það.
SKULDBINDING OKKAR
Öll framleiðsluferli okkar eru hönnuð til að tryggja hámarksgæði vörunnar og eru byggð á GMP-stöðlum. Stefna okkur við framleiðsluna er að skila auknum verðmætum til samfélagsins með minni aðföngum, sjálfbærri nýtingu auðlinda og lágmarksáhrifum á umhverfið.